18. mars verður sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 11.  Þær Erna og Ragga sjá um dagskrána og Fríkirkjubandið um tónlistina.
Athugið að sunnudagaskólinn fellur síðan niður tvö næstu skipti, á pálmasunnudag verða fermingar og þar á eftir páskadagur.
 
Um kvöldið kl. 20 í kirkjunn er síðan  lokasamvera fermingarbarna og fjölskyldna þeirra. Með henni lýkur fermingarfræðslunni.  Jón Jónsson tónlistar- og sjónvarpsmaður kemur í heimsókn.  Jón er einmitt einn þeirra sem lætur sig kirkjuna okkar varða og mikilvægi fermingarfræðslunnar.  Hann gefur áreiðanlega góð „fermingarráð“ milli þess sem hann grípur í gítarinn.