Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags

21.-22.sept.

Hópar A og B

Fermingarbörn úr  Lækjarskóla og Öldutúnsskóla,  Setbergsskóla og Víðistaðaskóla.

Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu á föstudeginum  kl.15:30.

Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt og komið til baka um kl. 14:30 á laugardeginum.

Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags

28. -29. sept.

Hópar C og D

Fermingarbörn úr Áslandsskóla, Hvaleyrarskóla, Hraunvallaskóla, Nú og skólum utan Hafnarfjarðar.

Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu á föstudeginum  kl. 15:30.

Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt og komið til baka um kl. 14:30 á laugardeginum.

Upplýsingar um ferðirnar

 Ef einhver kemst ekki með er nauðsynlegt að vita af því sem allra fyrst.

 

Kostnaður  er  10.000 kr. og er innifalið í verðinu  rútuferð, gisting og fullt fæði allan tímann svo ekki þarf að taka með sér nesti.

Takið með svefnpoka eða sængur.

Það þurfa allir að vera vel búnir til útivistar enda verður mikil útidagskrá að hætti skátanna og farið í gönguferðir ( muna regngalla og góða skó ).