„Einstaklingi, sem skírður var á barnsaldri, gefst kostur á að bera sjálfur fram þá játningu, sem foreldrar og guðfeðgin játuðu fyrir hann við skírnina. Það gerist í fermingunni, en ferming þýðir staðfesting. Áður en einstaklingur fermist, er hann uppfræddur í kristinni trú“
(Ljós í heimi, kristin trú og nútíminn e. Einar Sigurbjörnsson bls. 142.)
Fríkirkjan býður upp á fermingarfræðslu. Á hverju hausti hefst hún með því að unglingar skrá sig á skrifstofu safnaðarins. Mikilvægt er að stíga slíkt skref af heilum hug og sinna bæði fræðslu sem og helgihaldi vel.
Fríkirkjan óskar eftir samstarfi við foreldra – að unglingarnir mæti ekki einir til guðsþjónustu heldur séu ætíð í fylgd foreldra eða forráðamanna því margt er það sem leitar á hugann og nauðsynlegt að ræða við þá sem fullorðnir eru og standa manni næst.
Frekari upplýsingar eru að finna undir Fermingin efst á síðunni.