Hún var frábær samveran og kynning á fermingarstarfinu í troðfullri kirkjunni í gær, 20. ágúst !
 
Hópaskipting fermingarfræðslunnar  verður eftirfarandi:
(Breytingar ef ekki passar er best að ræða við prestana, þau Einar og Siggu)

  • Hópur A: Lækjarskóli og Setbergsskóli
  • Hópur B: Hraunvallaskóli og Öldutúnsskóli
  • Hópur C: Víðistaðaskóli, Hvaleyrarskóli, Sjáland og  Nú
  • Hópur D: Áslandsskóli og skólar utan Hafnarfjarðar.

 
Þriðjudagur 22.ágúst – fræðslustundir.
Hópur A kl.17, hópur B kl.18
Lesa í Con Dios: Hver? Ég bls. 8-16
 
Þriðjudagur 29. ágúst – fræðslustundir.
Hópur C kl.17, hópur D kl.18
Lesa í Con Dios: Hver? Ég bls. 8-16
 
Úlfljótsvatn 15., 16. og 17. september
 

  • Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags

15.-16.sept.
Fermingarbörn úr  Lækjarskóla og Setbergsskóla, Hraunvallaskóla og Öldutúnsskóla.
Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu föstudaginn  15.sept.  kl.15:30.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt.
 
 

  • Ferð á Úlfljótsvatn frá laugardegi til sunnudags

16.-17. sept.
Fermingarbörn úr Víðistaðaskóla, Hvaleyrarskóla, Áslandsskóla, Sjálandssk. Nú. og skólum utan Hafnarfjarðar Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu laugardaginn  16. sept. kl. 12.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt.
 
Það er mikilvægt að allir komi með enda ferðin hugsuð sem tækifæri til að fá að kynnast sem best. Ef einhver kemst ekki með er nauðsynlegt að vita af því sem allra fyrst.
 
Kostnaður  er  7.000 kr. og er innifalið í verðinu  rútuferð, gisting og fullt fæði allan tímann svo ekki þarf að taka með sér nesti.
Takið með svefnpoka eða sængur.
Það þurfa allir að vera vel búnir til útivistar enda verður mikil útidagskrá að hætti skátanna og farið í gönguferðir ( muna regngalla og góða skó ).
 
Sælgæti og snakk tökum við ekki með í ferðina enda boðið upp á góðar máltíðir allan tímann.
 
Geymum græjurnar heima s.s. gsm, ipod, ipad.