Fríkirkjan í Hafnarfirði leitar til safnaðarins með greiðsluseðla sem birtast munu í heimabanka.
Um er að ræða frjáls framlög og það er vitanlega val hvers og eins að greiða þessar 2.100 kr.
Fríkirkjan er alfarið rekin á sóknargjöldum og framlögum eins og þessum. Laun prestanna, tónlistarstjóra og rekstur á kirkjunni og safnaðarheimilinu greiðast af sóknargjöldum. Prestar Fríkirkjunnar eru ekki greiddir beint af ríkinu eins og tíðkast yfirleitt hjá þjóðkirkjunni.  Að auki er rétt að hafa í huga að það eru eingöngu söfnuðir þjóðkirkjunnar sem njóta 17% jöfnunarframlags og innheimt er með þeim sóknargjöldunum sem m.a. við í Fríkirkjusöfnuðinum greiðum.
Það má segja að aðrar fjáraflanir geri Fríkirkjunni kleyft að halda úti jafn öflugu safnaðarstarfi og raun ber vitni. Þar munar sannarlega um  frjáls framlög sóknarbarna.   Hækkun sóknargjalda er ákvörðuð í fjárlögum.  Hún var lítil að þessu sinni og  heldur enganveginn í við verð- og launahækkanir.  Engu að síður er stöðugt aðhald í rekstri safnaðarins.
Fríkirkjan í Hafnarfirði stendur á eigin fótum. Blómlegt og gefandi starf byggist því á áhuga og vilja safnaðarins hverju sinni.
Um leið og við í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þökkum ómetanlegan stuðning á undanförnum árum vonumst við eftir góðum viðbrögðum.
Einar Sveinbjörnsson, form. safnaðarstjórnar
vedurvitinn@gmail.com, s. 857-1799