Fríkirkjan í Hafnarfirði er eftirsótt útfarakirkja þó hún sé langt í frá stærsta kirkja landsins.  Hún tekur með góðu móti 200-250 gesti í sæti og fleiri sé þröngt setinn bekkurinn.
Í kirkjunni fæst nánd sem margir sækjast eftir og umhverfið er hlýlegt og persónulegt.
Myndina tók  Guðni Gíslason á Fjarðarfréttum nýlega þegar hann kvaddi vin sinn undir fögrum regnboga og haustsólargeislum.