Fríkirkjan í Hafnarfirði leitar til safnaðarins með greiðsluseðla sem birtast munu í heimabanka.
Um er að ræða frjáls framlög og það er vitanlega val hvers og eins að greiða þessar 2.100 kr.
Fríkirkjan er alfarið rekin á sóknargjöldum og framlögum eins og þessum. Laun prestanna, tónlistarstjóra og rekstur á kirkjunni og safnaðarheimilinu greiðast af sóknargjöldum. Prestar Fríkirkjunnar eru þannig ekki ríkisstarfsmenn. Að auki er rétt að hafa í huga að það eru eingöngu söfnuðir þjóðkirkjunnar sem njóta 17% jöfnunarframlags og innheimt er með þeim sóknargjöldunum sem m.a. við í Fríkirkjusöfnuðinum greiðum.
Það má segja að aðrar fjáraflanir geri Fríkirkjunni kleyft að halda úti jafn öflugu safnaðarstarfi og raun ber vitni. Þar munar sannarlega um  frjáls framlög sóknarbarna.   Hækkun sóknargjalda var minni en vænta mátti, en þau eru ákvörðuð í fjárlögum.  Á sama tíma hækkar fastir kostnaðarliðir.  Engu að síður er stöðugt aðhald í rekstri safnaðarins.
Fríkirkjan í Hafnarfirði stendur á eigin fótum. Blómlegt og gefandi starf byggist því áFrikirkjan_klæðning_1 áhuga og vilja safnaðarins hverju sinni.
Um leið og við í Fríkirkjunni í Hafnarfirði þökkum ómetanlegan stuðning á undanförnum árum vonumst við eftir góðum viðbrögðum.
Einar Sveinbjörnsson, form. safnaðarstjórnar