Kl. 11 er sunnudagskólinn með sínum söng og ánægju !
Við eigum síðan von á góðum gestum á kvöldvöku kl. 20 á sunnudag.
Hljómsveitin Eva ætlar að flytja texta, en það verður líka sungið.

  • Hljómsveitin Eva er popphljómsveit sem spilar kántrískotið femínískt pönk með þýðum og þjóðlegum undirtón.Hljómsveitin samanstendur af tónlistarkonunum og sviðshöfundunum Sigríði Eir Zophoníasardóttur og VöluHöskuldsdóttur. Hljómsveitin Eva er þekkt fyrir töfrandi og líflega framkomu sem kemur áhorfendum sífellt á óvart, kitlar hláturtaugarnar og snertir hjörtun um leið.
  • Hljómsveitin Eva hlaut Grímu tilnefningu fyrir tónlist sína sem samin var fyrir Gullna hliðið sem var sett upp af Leikfélagi Akureyrar árið 2014 og fyrsta plata sveitarinnar, Nóg til frammi, kom út í lok árs 2014.