Þessa dagana er verið að mála kirkjuna, lokið er við að mála þakið og er það komið með sinn dökkgræna lit eftir að hafa verið málmgrátt í nokkuð mörg ár.
Á myndinni má sjá Jón Júlíus málningarverktakann okkar hátt uppi í körfubílnum að bera á kirkjuturninn.  Aðspurður viðurkenndi Jón að það hefði eiginlega farið um hann einum í þessari hæð þrátt fyrir sína löngu fagreynslu.
Vonandi helst veður þurrt og gott svo ljúka megi verkinu með sóma.