Dagskrá Kvenfélags Fríkirkjunnar veturinn 2018-2019
ÞRIÐJUDAGINN 2. OKTÓBER verður fyrsti fundur vetrarins í safnaðarheimilinu við Linnetstíg 6, kl. 20:00. Þar munum við kynna vetrarstarfið ásamt því að góður gestur kemur á fundinn. Guðrún Harpa Bjarnadóttir mun koma og segja okkur frá mjög áhugaverðu starfi tengdu konum í Nepal. Velkomið að bjóða gestum með sér á fundinn.
SUNNUDAGINN 7. OKTÓBER verður Kaffidagur kvenfélagsins og þá verður kaffisala að lokinni messu í kirkjunni. Athugið að messan hefst kl. 14.00.
Við treystum á þig eins og áður að senda okkur köku eða eitthvað annað. Allt er þegið með þökkum. Tekið á móti kökum frá kl. 11.00 f.h., í safnaðarheimilinu.
ÞRIÐJUDAGINN 6. NÓVEMBER. Mæting í safnaðarheimilinu kl. 18:30.
Þá munum við bregða okkur af bæ og fara að heimsækja listamann sem er með listastofu hér í Hafnarfirði. Nánar auglýst síðar.
SUNNUDAGINN 2. DESEMBER kl. 20.00 verður jólafundurinn. Hann verður haldinn í Hásölum, hátíðarsal Þjóðkirkjunnar. Að venju verður fjölbreytt dagskrá og hið margfræga happdrætti. Allir velkomnir.
ÞRIÐJUDAGINN 5. FEBRÚAR 2019, verður Aðalfundur í safnaðarheimilinu kl.20.00. Venjuleg aðalfundarstörf.
SUNNUDAGINN 10. MARS 2018 verður okkar árlegi basar í safnaðarheimilinu, að messu lokinni.
Messan hefst k. 13.00. Nánar auglýst síðar. Við munum leita til ykkar með varning á basarinn og munum við hafa samband við ykkur síðar varðandi hann.
Barnastarfið er hvern sunnudag kl. 11.00 í kirkjunni. Kvenfélagið styrkir m.a. barnastarfið, kirkjuna og starfssemi hennar.
Við viljum vekja athygli þína á því að árið 2018 er afmælisár Kvenfélagsins og verður Kvenfélag Fríkirkjunnar 95 ára. Nú þegar hefur verið hafinn undirbúningur afmælisferðar í tengslum við afmælið. Fyrirhugað er að ferðin verði VOR 2019. Nánari dagsetning og dagskrá verður auglýst síðar.
Við sendum þér og fjölskyldu þinni kærar kveðjur og vonumst til að sjá þig á fundum í vetur.
Kær kveðja Stjórnin
Lilja Dögg Gylfadóttir, formaður. Sími 6667488
Unnur Elfa Guðmundsdóttir, ritari. Sími 6645801
Ólöf Baldursdóttir gjaldkeri Sími 6590524
Ragna Valdimarsdóttir, meðstjórnandi Sími 8442952
Birna Guðmundsdóttir, meðstjórnandi. Sími 8604014
Nánari upplýsingar veitir Lilja Dögg Gylfadóttir í síma: 666-7488 eða í netfangi kvenfélagsins er kvenfelag.frikirkja@gmail.com
SAGA KVENFÉLAGSINS
Kvenfélagið (úr Sögu Hafnarfjarðar, 2. bindi, bls. 408-409):
,,Fyrsta verkefni Kvenfélags Fríkirkjusafnaðarins var að greiða kostnað við að setja upp ljós í kirkjunni og sjá um hreinsun hennar. Síðan hafa konurnar annazt um að prýða kirkjuna og lagt til búnað hennar og skrúða prestsins. Auk þess hefur kvenfélagið styrkt kirkjustarfið á ýmsan annan hátt, t.d. tekið þátt í orgelkaupum, greiðslu til organinstans, viðhaldi kirkjunnar o.fl. Fjár til starseminnar hefur félagið aflað með bösurum, hlutaveltum, happdrætti, úti- og inniskemmtunum og stundum með merkjasölu. Við Fríkirkjuna var stofnaður minningarsjóður um frú Guðrúnu Einarsdóttur, fyrsta formann kvenfélagsins, og hefur þessi sjóður oft hlaupið undir bagga, þegar fjárfrekar framkvæmdir við kirkjuna hafa verið á döfinni. Á síðari árum hefur Kvenfélag Fríkirkjusafnaðrins ásamt safnaðarstjórn og safnaðarprestum unnið að því að koma á fót barnasamkomum í kirkjunni til að laða börnin að kirkjulegu starfi. Kvenfélagið kostar þetta starf að öllu leyti, og hafa barnasamkomurnar verið vel sóttar. Þá hafa félagskonur gert sér glaðar stundir, er þær hafa komið saman til að vinna að ymsum menningarmálum.”
Framangreint er úr Sögu Hafnarfjarðar 1908-1983. Starfinu eins og það hefur þróast síðan þá gerum við skil við fyrsta hentgleika. (jgr / 2. maí, 2009)