Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags

13.-14. september.

Fermingarbörn úr Hraunvallaskóla, Skarðshlíðarskóla og Setbergsskóla.

Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu á föstudeginum kl. 15:30.

Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt og komið til baka um kl. 14:30 á laugardeginum.

Ef einhver kemst ekki með er nauðsynlegt að láta vita af því sem allra fyrst.

Kostnaður er 10.000 kr. og er innifalið í verðinu rútuferð, gisting og fullt fæði allan tímann svo ekki þarf að taka með sér nesti.

Takið með svefnpoka eða sængur, kodda og lak.

Endilega taka með handklæði líka.

Það þurfa allir að vera vel búnir til útivistar enda verður mikil útidagskrá að hætti skátanna og farið í gönguferðir (muna regngalla og góða skó).

Sælgæti og snakk tökum við ekki með í ferðina enda boðið upp á góðar máltíðir allan tímann.

Geymum snjalltækin heima.