Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags 15.-16.sept:
Fermingarbörn úr  Lækjarskóla og Setbergsskóla, Hraunvallaskóla og Öldutúnsskóla.
Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu föstudaginn  15.sept.  kl.15:30.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt.
Komið heim á laugardeginum áætlaðað um kl. 15:30
 
Ferð á Úlfljótsvatn frá laugardegi til sunnudags 16.-17. sept:
Fermingarbörn úr Víðistaðaskóla, Hvaleyrarskóla, Áslandsskóla, Sjálandssk. Nú. og skólum utan Hafnarfjarðar.
Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu laugardaginn  16. sept. kl. 12.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt.
Komið heima á sunnudegi, áætlað kl. 12:00.
 
Sameiginlegar upplýsingar.
Það er mikilvægt að allir komi með enda ferðin hugsuð sem tækifæri til að fá að kynnast sem best. Ef einhver kemst ekki með er nauðsynlegt að vita af því sem allra fyrst.
Kostnaður  er  7.000 kr.  Greitt með peningum eða korti við brottför.
Innifalið í verðinu er rútuferðin, gisting og fullt fæði allan tímann svo ekki þarf að taka með sér nesti.
Takið með svefnpoka eða sængur.
Það þurfa allir að vera vel búnir til útivistar enda verður mikil útidagskrá að hætti skátanna og farið í gönguferðir ( muna regngalla og góða skó ).
Sælgæti og snakk tökum við ekki með í ferðina enda boðið upp á góðar máltíðir allan tímann.
Geymum græjurnar heima s.s. gsm, ipod, ipad.