Eins og ævinlega var jólafundur Kvenfélags Fríkirkjunnar, 3. des., mjög vel heppnaður.
Hann er ævinlega 1. sunnudag í aðventu, en veður og ófærð hefur stundum sett strik í reikninginn.  En ekki í gær, í besta veðri í sal Hafnarfjarðarkirkju eftir áralanga hefð í Skútunni.  Henni hefur nú verið lokað og kallaði á breytingar.
120 komur á öllum aldri mættu og skemmtu sér.  Hápunkturinn er jólahappdrættið og vinningar frá velunnurum þöktu langborðið sem sést á myndinni.  Allar vinningarnir gengu þó út að lokum !
Fjáröflun Kvenfélagsins rennur með einum eða öðrum hætti til styrkingar á barnstarfi Fríkirkjunnar.  Öllum þessum frábæru konum er margfaldlega þakkaður velvilji sem þær sýna kirkjunni enn eitt árið.
 
Fleiri myndir á fésbók Fríkirkjunnar hér:
https://www.facebook.com/frikhafn/?hc_ref=ARRWHoFCEtGvGECvXRoJoLYTk1a4KeR8WVAHsj-983VMFW9e_QCsuDfgM941j-GMlHg