Friðbjög Proppé, sem altaf er kölluð Bibba, átti afmæli sl. sunnudag 6. febrúar.  Bibba er að öðrum ólöstuðum ötulasti kirkjugestur Fríkirkjunnar og hefur sótt Sunnudagskólann í áratugi.  Og nú þegar Bibba átti 67 ára afmæli var að sjálfsögðu sunginn afmælissöngurinn henni til heiðurs.  Á eftir  spilaði hún á  hljómborðið sitt með Fríkirkjubandinu og tóku kirkjugestir vel undir.
Sannkallaður gleðidagur og ekki spillti fyrir að í Sunnudagaskólanum voru líka færðir til skírnar tvíburarnir Kristinn Jarl og Alexander Freyr.