12. febrúar: Sunnudagaskóli kl. 11, guðsþjónusta kl. 13 og Sólvangur kl. 15

Mikið um að vera í Fríkirkjunni komandi sunnudag 12. febrúar. Byrjar á sunnudagaskólanum kl. 11. Guðsþjónusta verður síðan kl. 13. Sr. Sigríður Krístín ætlar að fjalla um talenturnar. Augljóslega tengist það orðinu talent – og aldrei að vita nema ungt fólk láti ljós sitt skína við stundina í kirkjunni. Að síðustu mun sr. Einar Eyjólfsson messa á Sólvangi kl. 15 í salnum á 1. hæðinni. [Lesa meira...]
Bibba

Friðbjög Proppé, sem altaf er kölluð Bibba, átti afmæli sl. sunnudag 6. febrúar. Bibba er að öðrum ólöstuðum ötulasti kirkjugestur Fríkirkjunnar og hefur sótt Sunnudagskólann í áratugi. Og nú þegar Bibba átti 67 ára afmæli var að sjálfsögðu sunginn afmælissöngurinn henni til heiðurs. Á eftir spilaði hún á hljómborðið sitt með Fríkirkjubandinu og tóku kirkjugestir vel undir. Sannkallaður [Lesa meira...]