Útvarpsmessa frá Fríkirkjunni
Útvarpað var messu frá Fríkirkjunni í dag, sunnudaginn 24.mars. Hún var reyndar tekin upp í vikunni og engir raunverulegir kirkjugestir. Það var að okkar ósk þar sem við viljum reyna eins og kostur er að halda sunnudagaskólanum á sínum tíma kl. 11, helst alla sunnudaga. Loftslagsmál koma við sögu í samtalspredikun prestanna, en líka Eurovisonlagið ...
Sunnudagurinn 17. mars. Kl. 11. Sunnudagaskólinn og kl. 20 lokasamvera fermingarbarna.
Dagskráin í Fríkirkjunni komandi sunnudag 17. mars er þessi: kl. 11. Sunnudagaskólinn. Rebbi og Mýsla mæta og ræða hvað það þýðir að vera montinn og sjálfumglaður. Erna og Ragga sjá um stundina ásamt Fríkirkjubandinu. kl. 20. Kvöldvaka. Lokasamvera fermingarbarna. Jón Jónsson tónlistarmaður mætir með gítarinn og spjallar. Við þéttum hópinn fyrir fermingarnar ...
Kvenfélagið seldi hratt og nánast allt á sínum árlega basar
Sunnudaginn 10. mars var Kvenfélag Fríkirkjunnar með sinn árlega basar í safnaðarheimilinu. Á undan var messa í kirkjunni þar sem krílakórarnir sungu. Stemmingin yfirveguð og frjálsleg eins og sjá má á myndinni. Eftir guðsþjónustuna voru dyrnar að safnaðarheimilinu opnaðar og handagnagur í öskjunni. Kökurnar og kruðeríið kláraðist þvi sem næst allt á korteri. Tekjur af ...
10. mars – stór dagur í Fríkirkjunni
kl. 11. Sunnudagaskóli. Edda og félagar í Fríkirkjubandinu tromma upp og sjá um dagskránna. kl. 13. Guðsþjónusta kl. 13. Barn verður borið til skírnar. Barna- og Krílakórar syngja ásamt Ernu Blöndal og Erni Arnarsyni. Kl. 14. Basar kvenfélags Fríkirkjunnar hefst strax að messu lokinni í Safnaðarheimilinu. Meðal annars: Handverk, hnallþórur og túlípanar til sölu. Allt ...
Sumarmessur í Garðakirkju
Sumarmessurnar í Garðakirkju verða kl. 11:00 alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst.
Sumarmessurnar eru samstarfsverkefni kirknanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði. Sóknirnar eru: Ástjarnarsókn, Bessastaðasókn, Garðasókn, Hafnarfjarðarsókn, Víðistaðasókn og Fríkirkjan í Hafnarfirði. Messuhaldið skiptist á milli presta, tónlistar- og starfsfólks kirknanna.
Safnaðarstarf hefst aftur
Mánudagar
16:30 Krílakór yngri
17:00 Krílakór eldri
Þriðjudagar
10:30 – 11:10 Krílasálmar
17:00 – 19:00 Fermingarstarf
Miðvikudagar
18:30 – 21:00 Fríkirkjukórinn æfing
Fimmtudagar
17:00 – 17:30 Litli kór
17:30 – 18:15 Barnakór Fríkirkjunnar
18:30 – 19:45 Syngjum saman – Tónlistin er hjartans mál – verið öll hjartanlega velkomin.
Fyrsta þriðjudag í mánuði: Kvenfélagið kl. 20:00
Annan þriðjudag í mánuði: Prjónagleði kl. 19:30
Samfélagsmiðlar
Opnunartími
Alla virka daga
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Linnetsstíg 6
220 Hafnarfirði
Sími: 565 3430