Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags
21.-22.sept.
Hópar A og B
Fermingarbörn úr Lækjarskóla og Öldutúnsskóla, Setbergsskóla og Víðistaðaskóla.
Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu á föstudeginum kl.15:30.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt og komið til baka um kl. 14:30 á laugardeginum.
Ferð á Úlfljótsvatn frá föstudegi til laugardags
28. -29. sept.
Hópar C og D
Fermingarbörn úr Áslandsskóla, Hvaleyrarskóla, Hraunvallaskóla, Nú og skólum utan Hafnarfjarðar.
Lagt verður af stað frá safnaðarheimilinu á föstudeginum kl. 15:30.
Dvalið verður við leik og störf á Úlfljótsvatni eina nótt og komið til baka um kl. 14:30 á laugardeginum.
Upplýsingar um ferðirnar
Ef einhver kemst ekki með er nauðsynlegt að vita af því sem allra fyrst.
Kostnaður er 10.000 kr. og er innifalið í verðinu rútuferð, gisting og fullt fæði allan tímann svo ekki þarf að taka með sér nesti.
Takið með svefnpoka eða sængur.
Það þurfa allir að vera vel búnir til útivistar enda verður mikil útidagskrá að hætti skátanna og farið í gönguferðir ( muna regngalla og góða skó ).