Fermingar 2026

  • Laugardagur 28. mars 2026
  • Pálmasunnudagur 29. mars 2026
  • Skírdagur 2. apríl 2026
  • Sumardagurinn fyrsti 23. apríl 2026
  • Laugardagur 2. maí 2026
  • Sjómannadagurinn 7. júní 2026

Fermingar 2027

  • Laugardagur 20. mars 2027 kl. 11:00 og 13:00
  • Pálmasunnudagur 21. mars 2027 kl. 11:00 og 13:00
  • Skírdagur 25. mars 2027 kl. 11:00 og 13:00
  • Sumardagurinn fyrsti 22. apríl 2027 kl. 9:30, 11:00, 12:30 og 14:00
  • Laugardagur 8. maí 2027 kl. 9:30, 11:00 og 13:00
  • Sjómannadagurinn 6. júní 2027 kl. 9:30, 11:00 og 13:00

Ferming er merkileg stund í lífi fermingarungmenna og fjölskyldna þeirra. Stór tímamót þar sem fermingarungmenni þiggur blessun og kærleiksrík orð sem veganesti í ferðalagið til fullorðinsára. Fermingin snýst fyrst og fremst um það að gleðjast með fermingarungmenninu fyrir það eitt að vera það sjálft og sýna því að maður stendur aldrei einn í lífinu. Við erum elskuð af Guði og elskuð af fólkinu okkar, sem stendur okkur nærri.

Í fermingarfræðslunni förum við yfir margt gagnlegt og skemmtilegt og veltum fyrir okkur mörgum stærstu spurningum samtímans. Ekkert er okkur óviðkomandi, hvort sem það er trú og efi, gleði og sorg, umhverfismál, samskipti kynjanna, mannréttindi, #metoo, kynverund, virðing eða jafnrétti. Leiðbeinendur fermingarfræðslunnar eru prestar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, Einar Eyjólfsson, Inga Harðardóttir og Margrét Lilja Vilmundardóttir ásamt söngkonunni og sálgætinum K. Ernu Blöndal. Einnig fáum við góða gesti í heimsókn yfir veturinn.

Fríkirkjan leggur mikið upp úr góðu samstarfi við foreldra í gegnum fræðslu vetrarins og óskar eftir góðri þátttöku foreldra og fermingarungmenna í helgihaldi og einstaka fyrirlestrum yfir veturinn. Enda gott tækifæri á góðum gæðastundum.

Mikilvægt er að biðja um aðgang að facebook-síðu kirkjunnar Fermingarhópur 2027.

Hægt er að senda fyrirspurnir á netföng prestanna eða Ernu. Einnig er hægt að hringja í síma: 565-3430.

Netföng presta og Ernu: milla@frikirkja.is, inga@frikirkja.is og einar@frikirkja.is. erna@frikirkja.is Við minnum ykkur á mikilvægi þess að að skrá barnið í söfnuðinn á skra.is

Verið hjartanlega velkomin í Fríkirkjuna í Hafnarfirði.