Nýr minningarsjóður!
Minningarsjóðurinn styður sérsstaklega við framkvæmdir og stækkun á safnaðarheimili kirkjunnar að Linnetstíg 6. Fríkirkjan í Hafnarfirði Kennitala: 560169-5159 Banki: 0545 - 26 - 005159 Með þessari fallegu gjöf tjáir þú hug þinn og heiðrar minningu vina og skyldmenna sem hafa óskað eftir stuðningi þínum við kirkjuna þeirra. Einnig er velkomið að hringja til okkar ...
Falleg stund við litlu fjölskyldukirkjuna!
Í dag vígðu Margrét Lilja fríkirkjuprestur og Siggi Brynjólfs bekk einmanleikans í Firðinum 🙏 Birt með góðfúslegu leyfi! Vika einmanaleikans 2025 var vikuna 3.- 10. október Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til ...
Haust- og vetrarstarf litlu fjölskyldukirkjunnar að hefjast!
Kæru vinir, eins og þið hafið kannski tekið eftir þá standa yfir framkvæmdir í safnaðarheimilinu. Vegna þessa verður örlítið rask á starfinu okkar þetta haustið. Við vonum að þið sýnið okkur skilning vegna þessa. Sunnudaginn 7. september kl. 11:00 hefst syngjandi kátur sunnudagaskóli. Það verða það þær Edda, Erna og Inga, nýji presturinn okkar dásamlegi ...
Framkvæmdir hafnar í safnaðarheimili kirkjunnar!
Elsku vinir, þá eru ferðalagið hafið. Framkvæmdir eru hafnar á efstu hæð safnaðarheimilisins. Vegna þessa verður ekki hægt að leigja út salina næstu mánuði. Það er mikið verk framundan en við ætlum að vera bjartsýn og glöð. Okkur leggst eitthvað til eins og amma mín sagði alltaf Já nú förum við á fullt í að ...
9. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00
16. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og kvöldmessa kl. 20:00
23. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00
30. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og samverustund á aðventu með fermingar – fjölskyldum kl. 13:00 – 14:00 og 14:30-15:30
7. desember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og aðventukvöld kl. 20:00
14. desember: Jólaball sunnudagaskólans í Hellisgerði kl. 11:00
24. desember: Aftansöngur á aðfangadag kl. 18:00 og jólasöngvar á jólanótt kl. 23:30
25. desember: Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 14:00
31. desember: Aftansöngur á gamlársdag kl. 18:00
Mánudagar
Krílakórar:
16:30 Krílakór yngri
17:00 Krílakór eldri
Æfingar fara fram á Reykjavíkurvegi 68 2. hæð.
Þriðjudagar
Krílasálmar:
10:30 – 11:10 Krílasálmar fara fram í kirkjunni
16:30 – 18:30 Fermingarstarf
Miðvikudagar
Fríkirkjukórinn:
18:30 – 21:00 æfing
Fimmtudagar
Barnakór:
Öll börn eru hjartanlega velkomin kl. 17:00 – 17:45. Æfingar fara fram á Reykjavíkurvegi 68
Fyrsta þriðjudag í mánuði:
Kvenfélagið kl. 20:00
Prjónagleði – Upplýsingar á facebooksíðunni Prjónagleði Fríkirkjunnar í Hafnarfirði 2025-2026
Samfélagsmiðlar
Opnunartími
Alla virka daga
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Linnetsstíg 6
220 Hafnarfirði
Sími: 565 3430

