Að venju sýnir safnaðarfólk samstöðu. Það er gömul frétt en ekki ný að safnaðarfólk Fríkirkjunnar í Hafnarfirði tekur af krafti þátt í starfi og uppbyggingu kirkjunnar og safnaðarheimilis. Kirkjan er vel sótt og hefur vel verið staðið að viðhaldi hennar hvert ár. Safnaðarheimilið gengur þessar vikurnar í gegnum miklar endurbætur og er hægt að kynna sér stöðuna aftast í þessu bréfi til safnarfólks.

Kostnaður er í dag áætlaður 135 milljónir við þennan áfanga og leitar safnaðarstjórn til safnaðarfólks eftir stuðningi við verkefnið.
Mun krafa stofnast í heimabanka 30 ára og eldri næstu daga.

Ef einhver vill lækka fjárhæðina eða hækka hana bendum við á söfnunarreikning Fríkirkjunnar í Hafnarfirði á bankareikning númer:

Kt. 560169-5159 –  0545-26-005159

Hvert framlag skiptir miklu máli. Safnaðarstjórn vill einnig benda fjölskyldum á þann möguleika að færa kirkjunni minningargjöf um náinn ættingja. (sjá ofangreindar reikningsupplýsingar).  Vinsamlegast sendið upplýsingar um gjöf á einar@frikirkja.is

Við eigum öll Fríkirkjuna í Hafnarfirði saman. Við eigum hvert og eitt dýrmætar minningar úr sunnudagaskóla, frá kvöldvökum og öðru helgihaldi, fermingarstarfi og úr sálgæslu prestanna.

Við sem vinnum við Fríkirkjuna, prestar, starfsfólk og sjálfboðaliðar hvetjum ykkur öll og okkur sjálf að styðja við þessar mikilvægu endurbætur á safnaðarheimili kirkjunnar.

Athugið að Fríkirkjan í Hafnarfirði er skráð á almannaheillaskrá skattsins og þessi framlög geta veitt skattafslátt. Kirkjan sér um að senda skattinum lista með upphæð og  kennitölum þeirra sem styðja kirkjuna og framkvæmdir við safnaðarheimili á hverju ári.

Hver er staðan á framkvæmdum?

Uppbyggingu á nýju burðarvirki þaksins er lokið ásamt frágangi á þakdúk og lektum. Búið er að klæða einn fjórða af þakinu með báruáli ásamt skotrennum og einangra að innan.

Síðustu vikur hefur verið unnið við að styrkja gólf efstu hæðar vegna fyrirhugaðra breytinga á miðhæðinni og endurnýjunar á gólfinu sem var barn síns tíma.

Byrjað er á því að fjarlægja gamlar klæðningar á norðurhlið hússins. Húsið í dag er yst klætt með steniplötum á grind en innan við hana er húsið forskalað á gömlu bárujárni.

Tafsamt verður að fjarlægja gamlar klæðningar af húsinu.

Næstu vikur verður unnið við að klára gólf efstu hæðar eins og hægt er áður en farið verður í breytingar á miðhæðinni og lyftu komið fyrir milli hæða. Þá verður lokið við að klæða þakið með báruáli og það einangrað og klætt að innan. Haldið verður áfram vinnu við klæðningu útveggja.

Eftir 2. maí n.k. verður síðan hafist handa við breytingar á miðhæðinni og nýrri anddyrisbyggingu ásamt frágangi efstu hæðar.

Fyrir hönd starfsfólks og safnaðarstjórnar,

Einar Eyjólfsson, Erna Blöndal, Inga Harðardóttir, Margrét Lilja Vilmundardóttir, Gunnlaugur Harðarson og Sigurgeir Tryggvason