Aðfangadagur jóla 24. desember
 Jólaguðsþjónusta verður kl. 18 í beinu streymi frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Hlekkur á streymið verður aðgengilegur á heimasíðu kirkjunnar og facebook síðu kirkjunnar.

Kirkjan okkar er lítil og við þessar aðstæður rúmar hún takmarkaðan fjölda, þar sem annar hver bekkur verður lokaður. Kirkjugestir eru velkomnir, en þeir sem koma verða að framvísa gildu hraðprófi og gæta ítrustu sóttvarna. Við hvetjum ykkur öll til að eiga hátíðlega stund með okkur og njóta útsendingarinnar í beinu streymi.

Aðrar guðsþjónustur um jólin falla niður en prestarnir okkar eru ætíð til taks fyrir þá sem á þurfa að halda.

Við óskum öllum nær og fjær kærleika, ljóss og friðarjóla.

Starfsfólk Fríkirkjunnar í Hafnarfirði