Fríkirkjan leitar nú til safnaðarfólks um frjáls framlög til safnaðarstarfsins. Að þessu sinni er frjálsa framlagið 2300 kr. og birtist sem valgreiðsla í heimabanka.

 

Sérstaða Fríkirkjunnar í Hafnarfirði liggur m.a. í fjárhagslegu sjálfstæði hennar. Sóknargjöldin, sem eru skattur sem allir landsmenn greiða, þurfa að standa undir öllum kostnaði við safnaðarstarfið. Fríkirkjan hefur ekki sérsamninga við ríkið, til viðbótar við sóknargjöldin, líkt og Þjóðkirkjan hefur.

 

Fríkirkjuna í Hafnarfirði munar sannarlega um frjálsu framlögin frá safnaðarfólki til að sinna því góða samfélagslega starfi sem þar fer fram.

 

Frjálsu framlögin greiða að mestu viðhald kirkjunnar og hjálpa okkur að halda úti öflugu og fjölbreyttu safnaðarstarfi og ekki veitir af nú þegar starfið er komið á fullt eftir covid faraldur.

 

Hlýjar kveðjur,

safnaðarstjórn og starfsfólk Fríkirkjunnar í Hafnarfirði