Elsku vinir, við erum þakklát!

Endurbætur á fyrsta áfanga eru í fullum gangi og við erum bjartsýn á að annar áfangi geti hafist á vordögum.

Fyrsti áfangi endurbóta: Skipt um þak og sperrur, húsið klætt að utan með bárujárni og efsta hæðin innréttuð að nýju.

Til að standa straum af kostnaðinum við fyrsta áfanga leitaði safnaðarstjórnin til safnaðarfólks. Við viljum þakka okkar dásamlega söfnuði og velunnurum fyrir ómetanlegan stuðning. 

Mikilvæg vegferð kirkjunnar okkar heldur áfram og við horfum björtum augum til framtíðar. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Við eigum að skilja vel við og af metnaði fyrir komandi kynslóðir. Það gerum við nú með því að hlúa að safnaðarheimilinu sem geymir fallegar og á stundum erfiðar minningar. Tónlist, söngur, hlátur, grátur, harmur, þakklæti og gleði. Lífið í öllum sínum myndum. Samfélagið okkar er dýrmætt og það eru allir velkomnir, alltaf!

Fríkirkjan og safnaðarheimilið gegna viðamiklu hlutverki í starfi Fríkirkjusafnaðarins sem nú telur um 8000 manns. Dagleg sálgæsla þriggja presta er öllum opin auk þess sem prestar kirkjunnar starfa með áfallaráðum skóla og íþróttafélaga. Náið samstarf er við hjúkrunarheimilin í bænum um þjónustu við íbúa.

Við sem vinnum við Fríkirkjuna, starfsfólk,  prestar og sjálfboðaliðar hvetjum ykkur öll og okkur sjálf að styðja við þessar mikilvægu endurbætur á safnaðarheimili kirkjunnar.

Söfnunarreikningur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði:
Banki: 0545-26-005159 Kt. 560169-5159 –

Ef fjölskyldur vilja færa kirkjunni minningargjöf um náinn ættingja er hægt að nota ofangreindar reikningsupplýsingar. Vinsamlegast sendið upplýsingar um gjöf á einar@frikirkja.is

Athugið að Fríkirkjan í Hafnarfirði er skráð á almannaheillaskrá Skattsins og þessi framlög geta veitt skattafslátt. Kirkjan sér um að senda Skattinum lista með upphæð og  kennitölum þeirra sem styðja kirkjuna og framkvæmdir við safnaðarheimili á hverju ári.

Fyrir hönd starfsfólks og safnaðarstjórnar,
Kirstín Erna Blöndal

Einar Eyjólfsson, , Inga Harðardóttir, Margrét Lilja Vilmundardóttir,  Gunnlaugur Harðarson og Sigurgeir Tryggvason