Já, sjáið þessa fegurð! 

Jákvæðni, áhugi og spenna er beinlínis áþreifanleg, ekki bara hjá söfnuðinum heldur samfélaginu öllu. Það eru allir komnir upp á dekk og ófáar stundirnar sem sjálfboðaliðar og aðrir hafa lagt í þetta gríðarstóra verkefni sem söfnuðurinn stendur frammi fyrir.

En hvað stendur til? 

Endurbætur á núverandi safnaðarheimili Fríkirkjunnar sem komin er til ára sinna! Í framhaldinu verður farið í að byggja við innganginn til að bæta aðgengi að safnaðarheimilinu og síðan stendur til að byggja við það til að mæta betur þörfum stækkandi safnaðar.

Já það er komið að því að láta verkin tala og það gerum við með því að standa saman. Kynslóðir koma og kynslóðir fara. Það vantaði ekki bjartsýnina og metnaðinn þegar farið var í að byggja Fríkirkjuna árið 1913.    Við sækjum nú í kjark og metnað fyrri kynslóða og þeirra sem ruddu veginn, förum í verkefnið og horfum björtum augum til framtíðar með komandi kynslóðir í huga.

Meðfylgjandi er nýjasta teikningin af safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Breytingarnar munu skila sér í fallegu og vönduðu húsi sem fellur enn betur en áður að bárujárnsbyggðinni við (Austurgötu, Hverfisgötu og víðar) í miðbæ Hafnarfjarðar.