Næstkomandi sunnudag, 1. nóvember, er allraheilagramessa. Þá munu prestarnir og tónlistarfólkið okkar taka á móti ykkur kl. 20:00 í fallegu kirkjunni okkar og gefa sorginni og söknuðinum rými um stund.
Þessar stundir á allraheilgramessu eru hugljúfar þar sem við leggjum áherslu á fallega tónlist í notalegu umhverfi kirkjunnar. Við biðjum fyrir sálum látinna og leiðum hugann að öllum þeim sem við þekktum persónulega og elskum en eru nú fallnir frá.
Verið öll hjartanlega velkomin.
