Frá Bræðrafélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði:

Núna á fimmtudaginn, 29.10.2026, ætlum við að hittast í kirkjunni kl. 17:30 og ræða hvernig við getum stutt við söfnuðinn, safnaðarstjórn og starfssfólkið okkar í fjáröflun til stuðnings endurbyggingar safnaðarheimilisins.
Fáum okkur kaffisopa og tökum spjallið. Takið endilega með ykkur áhugasama menn um Bræðrafélagið og aðild að því.
Endurbygging safnaðarheimilisins er mjög stór framkvæmd sem tekur á söfnuð sem verður alfarið að treysta á safnaðargjöld og síðan styrki og framlög velviljaðra einstaklinga, fyrirtækja og opinberra aðila.
Við erum með ákveðnar hugmyndir en viljum gjarnan fá fleiri og ræða málin vítt og breitt með það að markmiði að virkja þann sterka mannauð sem skipar Bræðrafélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Það fylgja því engar skuldbindingar eða skylda að mæta á fundinn en auðvitað væri gaman ef allir færu heim með það að markmiði að styðja söfnuðinn í þessu verkefni með einhverjum hætti.
Og í lokin er gaman að minna á að það voru félagar í Bræðrafélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem byggðu glæsilegt hús fyrir prest safnaðarins að Tjarnarbraut á aðeins 170 dögum árið 1931. Sjá meðfylgjandi mynd úr bókinni Loksins klukknahljómur sem geymir 100 ára sögu safnaðarins. Þessir horfnu félagar okkar gáfu tóninn þá strax og við skulum ekki láta okkar eftir liggja!