Frá stjórn Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
„Kæru kvenfélagskonur.
Jólafundur Kvenfélagsins verður haldinn þriðjudaginn 24.nóvember kl. 19:30 í kirkjunni okkar. Kirkjan opnar kl. 19:00 og kostar 5000.- kr. inn á fundinn.
Dagskráin er fjölbreytt, upplestur , fræðsla, söngur, hugvekja og glaðningur í lokin frá Kvenfélaginu. Jólahappdrættið í ár verður rafrænt eins og verið hefur síðustu ár. Við munum byrja að selja miða 1. nóvember og miðinn kostar 2500.- kr.. Hægt verður að kaupa miða með því að leggja inn á reikning kvenfélagsins 0140-15-630535 kt. 6109952179 og sjálfkrafa fer seldur miði í pottinn. Aðeins dregið úr seldum miðum. Eins og undanfarin ár þá eru vinningar margir og fjölbreyttir.
Ef einhver hefur tök á að gefa happdrættisvinning þá er það vel þegið og hægt að koma þeim til stjórnar. Allur ágóði af jólafundinum rennur beint til uppbyggingar safnaðarheimilisins. Hlökkum til aðventunnar með ykkur.“
Þess skal getið hér að Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði var stofnað 11. apríl 1923 en þá höfðu konur í söfnuðinum verið afar virkar í stuðningi sínum allt frá stofnun, höfðu til dæmis gefið kirkjuklukkuna sem enn hljómar í kirkjunni nú árið 2026, eða í 113 ár. Til gamans má segja frá því að klukkan var sú fyrsta sem gerð var hér á landi í 200 ár, smíðuð af Valdimar Poulsen málmbræðslumanni í Reykjavík. Sjá hér til hliðar mynd af klukkunni sem birtist í umfjöllun um hana í Loksins klukknahljómi, 100 ára sögu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sem kom út 2013.
Kvenfélagið hefur verið einn öflugasti bakhjarl kirkjunnar þegar komið hefur að fjárfrekum framkvæmdum og stutt dyggilega við söfnuðinn með fjárframlögum. Kvenfélagskonur standa enn í stafni að þessu leyti og hefur jólafundurinn verið ein af helstu fjáröflunarleiðum félagsins. Því er mikilvægt að hann sé vel sóttur og að velunnarar kvenfélags og kirkju gefi happdrættisvinninga eins og stjórnin nefnir í pistli sínum hér að framan.
