Á dögunum komum við saman nokkrir úr Bræðrafélagi kirkjunnar. Unnið var að lagfæringum í kirkjunni og munir sem Fjarðarkaup hafa geymt vegna endurbóta á safnaðarheimilinu fluttir yfir í geymslu hjá Stakri gulrót/Bluevacations. Þetta var vaskur hópur og allt gekk þetta framar vonum og skiptir mestu að menn skemmtu sér hið besta í samvinnunni. Að lokum gæddu bræðrafélagar sér á pönnukökum og kvöddust sáttir og sælir eftir gott spjall og stutt hringjaranámskeið á kirkjuloftinu.
Viltu vera félagi í Bræðrafélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði? Því fylgja engar skuldbindingar aðrar en að greiða félagsgjald árlega sem nú er 5.000 krónur en auðvitað þiggjum við alltaf liðsinni „bræðra“ þegar eitthvað stendur til. Mest erum við í verklegri aðstoð í kirkjunni, safnaðarheimilinu eða umhverfi þessara bygginga okkar en ýmislegt annað er hægt að gera, s.s. við fjáröflun og slíkt. Engin skyldumæting er þegar kallað er til starfa og menn koma bara ef þeir vilja og geta. Sendu formanni póst á netfangið johanngudnireynisson@gmail.com til að fá frekari upplýsingar eða skrá þig í félagið. Til þess þarftu bara að senda netfang og kennitölu og þú ert kominn í „klúbbinn“!






