Við vekjum nú sérstaka athygli á mikilvægi þess að öll þau sem njóta þjónustu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði séu skráð í söfnuðinn. Það er vegna þess að megintekjustofn kirkjunnar liggur í svokölluðum safnaðargjöldum sem ríkið innheimtir gegnum skattkerfið og skilar til safnaðanna. Þessar aðaltekjur byggja á þeim fjölda sem skráður er í söfnuðinn miðað við 1. desember árið á undan. Þess vegna skiptir okkur svo miklu máli að þið kannið skráningu ykkar og gangið frá henni þannig að tekjurnar sem ríkið innheimtir fyrir okkur skili sér til okkar.
Hér höfum við fengið kirkjuvini í lið með okkur til þess að verkja athygli á þessu mikilvæga atriði og reifa um leið kynni sín og reynslu af þjónustu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Auk sr. Einars Eyjólfssonar eru þetta þau Guðrún „Gúa“ Gunnlaugsdóttir ljósmóðir og Gísli Þór Sigurbergsson kaupmaður. Við hvetjum ykkur til að heyra og sjá hvað þau hafa að segja því þessi skilaboð eru gríðarlega mikilvæg en um leið bæði falleg og einlæg.
Endilega kannið hvort þið eruð skráð í Fríkirkjuna í Hafnarfirði ef þið njótið þjónustu kirkjunnar eða viljið vera skráð hér hjá okkur af öðrum ástæðum. Það er einfalt á Ísland.is, sjá hér: https://island.is/tru-eda-lifsskodunarfelog
