Yfir 300 manns fylltu Fríkirkjuna í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar látinna var minnst á allraheilagramessu. Prestarnir okkar, þær Milla og Inga, leiddu athöfnina af sinni alkunnu hlýju. Kirkjukórinn okkar og Fríkirkjubandið, undir stjórn Arnar Arnarsonar, fluttu umvefjandi og fallega tónlist á sinn einstaka hátt.

Þessi stund hefur alltaf haft mikið tilfinningalegt gildi fyrir okkur í Fríkirkjusöfnuðinum í Hafnarfirði en þá gefst kirkjugestum kostur á að tendra ljós í kirkjunni í minningu látinna ástvina. Okkur þótti afar vænt um hversu mörg mættu í kirkjuna og allan þann mikla samhug og einingu sem ríkti þessa stund. Sem reyndar einkennir söfnuðinn og allt okkar starf. Við biðjum góðan Guð að blessa allar góðar minningar.

Verður ennfremur að segjast eins og er að í þetta sinn áttum við sjálf um sárt að binda í kirkjunni þar sem einn af samstarfsmönnum okkar, Guðmundur Pálsson tónlistarmaður, kvaddi þessa tilvist á aðfararnótt sunnudagsins. Guðmundur hefur fylgt okkur um langt árabil sem hljóðfæraleikari í Fríkirkjubandinu. Hann var drengur góður, frábær samstarfsmaður, tryggur og traustur, litríkur persónuleiki, bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi, glaðlyndur og kátur. Enda skáti af lífi og sál. Við munum sakna hans sárt.