Björk Pétursdóttir og Jóhann Guðni Reynisson skrifa.

Allt frá því Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði var stofnaður árið 1913 og kirkjan byggð á þremur mánuðum sama ár, hefur ríkt djúp og kröftug safnaðarvitund meðal safnaðarfólks. Söfnuðurinn var stofnaður af frumkvöðlum, fjölskyldum, ættingjum og vinum sem ákváðu að það væri kominn tími til að byggja kirkju í Hafnarfirði. Það þurfti að virkja fullt af fólki til að af þessu mætti verða. Mörg handtök, marga fundi, mikla peninga, fórnfýsi, gjafmildi, áræðni og dirfsku. Allt þetta var til staðar. Segja má að þessi atriði öll og fleiri til hafi einkennt frumherjana og að þau fylgi safnaðarstarfinu enn þann dag í dag.

Enn erum við að virkja safnaðarfólk til hinna ýmsu verkefna og ótrúlegur fjöldi tekur í hverjum mánuði á einhvern hátt þátt í starfinu. Konur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði skipa til að mynda eitthvert öflugasta kvenfélag landsins. Kvenfélag kirkjunnar er í raun helsti fjármögnunaraðilinn í starfinu ef frá eru talin mánaðarleg safnaðargjöld sem ríkið innheimtir af öllu skráðu safnaðarfólki gegnum skattkerfið. Kvenfélagið er gríðarlega öflugt í sínu starfi og hefur náð þeim árangri meðal annars með því að virkja félagsandann. En oft býr eitthvað meira undir og má þar nefna Jólafundinn sem nú er framundan og er ein helsta fjáröflunarleið kvenfélags kirkjunnar. Þar er meðal annars safnað fyrir lyftunni í endurbyggt safnaðarheimili og öllum innréttingum í nýtt eldhús þar. Stóra myndin sem fylgir þessari grein er tekin á 100 ára afmæli félagsins í heimsókn þess á Bessastaði 2023.

Bræðrafélagið á einnig djúpar rætur í safnaðarstarfinu en bræðrafélög eru sjaldgæfari og minna þekkt en kvenfélög. Bræðrafélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði var endurvakið fyrir um 10 árum og hafa félagar öðru hverju látið hendur standa fram úr ermum við ýmsar framkvæmdir, endurbætur og snyrtingu umhverfis kirkjuna og safnaðarheimilið. Um þessar mundir eru félagar í bræðrafélaginu til dæmis að hafa samband við fyrirtæki í bænum til þess að leita eftir styrkjum til að fjármagna endurbyggingu safnaðarheimilisins. Stuðningur félagsmanna byggir ekki eingöngu á verklegum þáttum og getur birst í ýmsum myndum.

Eruð þið örugglega skráð í söfnuðinn?

Það er sem fyrr hin sterka safnaðarvitund sem drífur okkur áfram. Við erum misjafnlega mikið trúuð og rækjum trú okkar á mismunandi hátt. Mörg okkar mætum oft í kirkjuna en mörg sleppa því nánast alveg. Það er einna helst við athafnir sem tengjast fólki persónulega sem það leggur leið sína í kirkjuna en mörg mætum við líka í sunnudagaskólann, kvöldvökur, messur, á kóræfingar, í krílasálma, á tónleika eða hvað eina sem er í þar í boði. Kirkjan veitir okkur ró og frið með tilfinningar okkar en líka kraft og hvatningu. Hún gerir allt í senn, hvetur, huggar, nærir og styrkir.

Við undirrituð hvetjum ykkur öll sem þetta lesið til að kanna hvort þið eruð ekki örugglega skráð í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfirði ef þið sækið þjónustu til prestanna okkar, þeirra Einars, Millu og Ingu, eða njótið þjónustu safnaðarins með öðrum hætti. Og ef ekki þá hvetjum við ykkur eindregið til þess að skrá ykkur í söfnuðinn gegnum Island.is. Að því loknu væri ekki úr vegi að skoða hvort aðild að kvenfélagi eða bræðrafélagi kirkjunnar gæti hentað ykkur. Engar kröfur eru gerðar um framlag af neinu tagi með aðild að þessum félögum, aðrar en þær að greiða árlegt félagsgjald. Hins vegar er starfsemi þessara félaga svo fjölbreytt og áhugaverð að margir hrífast með og hreinlega óska eftir því að fá að leggja starfinu lið með einhverjum hætti.

Viltu kanna hvernig skráningin þín er í trúfélag? Sjá það og þá skráningarmöguleikann hér:

https://www.skra.is/umsoknir/rafraen-skil/tru-og-lifsskodunarfelag/

Með bestu kveðjum,

Björk Pétursdóttir, formaður Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
Netfang til að sækja um aðild eða fá frekari upplýsingar: bjorkpetursd@gmail.com

Jóhann Guðni Reynisson, formaður Bræðrafélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
Netfang til að sækja um aðild eða fá frekari upplýsingar: johanngudnireynisson@gmail.com