Á föstudaginn kom til okkar hópur nemenda í húsasmíði ofan úr iðnskóla. Það var Úlfar Ormarsson kennari sem hafði samband við okkur í kirkjunni og óskaði eftir að fá að sýna nemendum framkvæmdir við safnaðarheimilið enda taldi hann verkefnið afar athyglisvert og gæti verið lærdómsríkt fyrir nemendur sína að sjá hvernig staðið er að endurbyggingu á svo gömlu húsi.
Gunnlaugur Harðarson (sem margir vita að er sonur Harðar kirkjuvarðar og Jóhönnu, blessuð sé minning þeirra) tók á móti hópnum og gerði grein fyrir verkefninu en hann er auk þess að vera gjaldkeri og margt fleira, umsjónarmaður fasteigna safnaðarins.
Það var sérstaklega ánægjulegt að fá þennan áhugasama hóp í heimsókn og við færum Úlfari og nemendum hans bestu þakkir fyrir komuna og vonum að þau hafi haft eitthvert gagn og gaman af.
Fríkirkjusöfnuðurinn er sjálfstæður söfnuður sem starfar eingöngu á safnaðargjöldum og frjálsum framlögum einstaklinga, fyrirtækja og opinverra aðila. Þar með talin eru laun presta og annars starfsfólks, allur kostnaður við húsbyggingar safnaðarins sem eru kirkja og safnaðarheimili. Það er því gríðarlega mikilvægt að allir sem njóta þjónustu Fríkirkjunnar í Hafnarfirði séu skráðir í söfnuðinn. Einnig skiptir afar miklu máli að safnaðarfólk taki vel í og greiði útsendar valkröfur í heimabanka þegar safnaðarstjórn leitar til þess um stuðning, eins og nú stendur yfir til dæmis og er ætlað að standa straum af hluta kostnaðar við endurbyggingu safnaðarheimilisins sem er eitt stærsta verkefni sem söfnuðurinn hefur ráðist í varðandi fasteiegnir.
Endurbygging gamalla húsa er víðtækt og flókið verkefni þar sem reglulega koma upp ófyrirséð atriði. Verkefnið er kostnaðarsamt og umfangsmikið og gaman að geta deilt því með áhugafólki um framkvæmdir og endurgerð gamalla húsa.