Barnastarf Fríkirkjunnar í Hafnarfirði hefur um langt skeið verið ein helsta kjölfestan í starfsemi safnaðarins. Barnastarfið er enn í miklum blóma með sunnudagaskólanum, krílasálmum og krílakór. Sunnudagaskólinn verður einmitt í kirkjunni á sunnudaginn klukkan 11. Já, á hverjum sunnudagsmorgni klukkan 11 fyllist kirkjan af lífi þar sem saman koma börn á ýmsum aldri, foreldrar, afar, ömmur, frænkur, frændur og vinir til að skemmta sér og öðrum. Mikil áhersla er lögð á skemmtilega upplifun en um leið á allt hið góða sem boðskapur kirkjunnar okkar hefur fram að færa.
Tónlistin er fyrirferðarmikil í sunnudagaskólanum eins og reyndar í öllu okkar starfi og þar kemur hljómsveitin okkar sterk inn. Fríkirkjubandið kemur í raun í staðinn fyrir orgelið sem er ekki mikið notað í starfinu. Gítar, bassi, píanó og stundum líka trommur, saxófónn og alls konar fleiri skemmtileg hljóðfæri. Lengi vel var einnig kraftur í æskulýðs- og unglingastarfi en með talsvert auknu framboði af alls kyns afþreyingu og tæknibreytingum hafa orðið breytingar á því hjá okkur eins og mörgum fleiri.
Og mörgum finnst alveg stórmerkilegt að þau Edda Möller og Örn Arnarson eru búin að vera í þessum skóla með okkur síðan 1984 og 1985!!! Edda og séra Einar komu til starfa 1984 og hún tók strax til við að gleðja börnin í kirkjunni og er enn að. Ári síðar byrjaði Örn hjá okkur og er búinn að vera síðan. Hann er nú tónlistarstjóri kirkjunnar og er búinn að vera lengi. Raunar eru þau Edda og Örn eiginlega rannsóknarefni því þrátt fyrir þennan langa tíma og hundruði ef ekki þúsundir sunnudagaskóla, er eins og þau séu alltaf á fyrsta árinu sínu! Það er alltaf eins og þau séu rétt að byrja! Það er svo gaman, það er svo mikið fjör. Alltaf hreint. Þetta fólk bara fær ekki nóg!
Verið velkomin í sunnudagaskóla Fríkirkjunnar í Hafnarfirði á sunnudögum kl. 11.
Meðfylgjandi myndir eru teknar úr bókinni Loksins klukknahljómur – Saga Fríkirkjunnar í Hafnarfirði í 100 ár, sem kom út 2013.


