Prestarnir okkar klappa í kirkjunni: Milla, Inga og Einar.

Samkvæmt nýrri frétt Þjóðskrár um skráningu í trúfélög hefur fjölgað mest í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Á vef Þjóðskrár segir m.a.:  Frá 1. desember 2025 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélögum verið mest í Fríkirkjunni í Hafnarfirði eða um 147 meðlimi. Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi enda höfum við lagt mikla áherslu á það við öll þau sem á einhvern hátt njóta þjónustu prestanna okkar, tónlistarfólks eða aðstöðu að skrá sig í söfnuðinn. Við hvetjum ykkur til að lesa það sem hér fer á eftir því það er gríðarlega mikilvægt:

Á þetta til dæmis við um foreldra skírnarbarna, fermingarbörn og aðstandendur þeirra, brúðhjón og aðstandendur látinna sem vilja njóta þjónustu starfsliðs Fríkirkjunnar í Hafnarfirði á þessum stundum í gleði eða sorg. Einnig um Sunnudagaskólann, Krílasálma, Krílakóra, Kvöldvökur og fleira sem við bjóðum unga fólkinu okkar upp á í hverri viku.

Þetta er ekki síst mikilvægt vegna þess að Fríkirkjan í Hafnarfirði er rekin nær eingöngu af safnaðargjöldum sem eru sambærileg sóknargjöldum sem aðrar kirkjur fá en til dæmis eru síðan laun presta Þjóðkirkjunnar greidd af ríkissjóði. Við greiðum sjálf laun prestanna okkar og annars starfsliðs af safnaðargjöldunum sem ríkið innheimtir gegnum skattkerfið og skilar til okkar. Sem sagt. Ef þið eruð ekki skráð í Fríkirkjuna í Hafnarfirði heldur kannski einhvern annan söfnuð, þá fær hann gjöldin en ekki við. Endilega kannið hvar þið eruð skráð og ef þið njótið þjónustu starfsfólksins okkar, prestanna eða annarra, þá endilega skráið ykkur. Þetta er einfalt að gera á þessari síðu á Ísland.is: https://island.is/tru-eda-lifsskodunarfelog

Hér hefur aðeins verið rætt um reksturinn. Framkvæmdir við húsakost kirkjunnar er svo önnur saga. Við erum með tvö gömul hús sem þarf að halda við og nú erum við að endurbyggja yfir 100 ára gamalt safnaðarheimili nánast frá grunni. Samt er þetta sama gamla góða húsið enda notast við mestan partinn af „stoðkerfi“ hússins og fleira. Slík framkvæmd er kostnaðarsöm og tímafrek, alltaf kemur eitthvað nýtt í ljós sem þarf að bregðast við og erfitt er að áætla kostnað og tíma. Við munum gera betri grein fyrir gangi mála fljótlega en aðalatriðið hér er það að við höfum í áranna rás þurft að leita til safnaðarins um hófleg fjárframlög öðru hverju þegar ráðist hefur verið í framkvæmdir. Núna er slík söfnun í gangi, kvenfélag kirkjunnar safnar af miklum móð, meðal annars með happdrætti og jólafundi, og bræðrafélagið mun leita til fyrirtækja um stuðning á næstunni. Við hvetjum ykkur sem þetta lesið til þess að standa skil á valgreiðslunni frá okkur í heimabankanum og hvetjum ykkur hin, sem ekki eruð skráð en viljið leggja okkur lið með þessum hætti og safnaðargjöldum, að skrá ykkur í söfnuðinn sem fyrst.

En athugið að starf okkar snýst alls ekki um safnaðargjöldin eða skráningu ykkar í trúfélag. Fríkirkjan í Hafnarfirði er söfnuður fólks sem tilheyrir rótgróinni sögu kristinnar trúar og samfélags um góð og falleg gildi sem hafa einkennt kirkjuna í yfir hundrað ár. Mörg okkar tilheyrum fjölskyldum sem eru fæddar inn í söfnuðinn en þeim fjölgar ört sem vilja eiga aðild að og styðja við þá fallegu starfsemi sem við stöndum fyrir. Öllum er tekið opnum örmum. Þið eruð öll velkomin í kirkjuna og starfið.

Meðfylgjandi myndir sýna annars vegar hvernig umhorfs var í Hafnarfirði snemma á síðustu öld. Þarna er kirkjan okkar á klettinum, séð frá Austurgötunni. Og svo eru það prestarnir okkar sem svo mörg hafa leitað til í gleði og sorg, f.v. Milla, Inga og Einar. Og já, það má klappa í kirkjunni :)