Guðmundur Pálsson f. 25/5/1963, d. 1/11/2026.

Í 25 ár höfum við í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fengið að njóta hæfileika og vináttu Guðmundar, elsku Gumma okkar, sem við nú kveðjum með miklum söknuði. Það er tómlegt í horninu hans í kirkjunni.

Gummi gegndi mörgum hlutverkum í fallegu kirkjunni okkar, allt frá því að spila á bassa í Fríkirkjubandinu í öllum sunnudagaskólum og kvöldmessum kirkjunnar, yfir í það að leika Rebba ref af mikilli snilld og halda utan um fermingarferðalög í anda skátanna á Úlfljótsvatni.

Guðmundi var margt til lista lagt og gaf svo ríkulega af sér. Allstaðar mætti hann með bros á vör og alltaf tilbúinn að taka þátt í ævintýrum kirkjunnar. Við sem störfuðum með honum vorum afar lánsöm að fá að njóta litríkrar birtunnar sem frá honum stafaði. Lífsgleði hans og falleg afstaða hans til lífsins, vináttunnar og góðra samskipta hafði smitandi áhrif á okkur öll sem í kringum hann vorum. Hann gerði kirkjuna okkar að betri stað fyrir vikið. Fyrir það erum við óendanlega þakklát og munum leitast við að halda lífsgleði hans og litadýrð á lofti.

Fyrir hönd vina Gumma í Fríkirkjunni í Hafnarfirði

Sr. Inga Harðardóttir og sr. Margrét Lilja Vilmundardóttir