
Garðakirkja.
Fríkirkjan í Hafnarfirði var reist á kletti og stendur þar á traustum grunni sem frumherjar safnaðarins reistu fyrir 113 árum. Þá var engin kirkja í bænum og fannst fólki tími til kominn að breyta því. Kirkjusókn fyrir Hafnfirðinga var að Görðum á Álftanesi og þótti mörgum það langur vegur að fara í misjöfnum veðrum og færi. Jafnvel með líkkistur á leið til útfarar. Þessu varð að breyta.
Kveikjan að þessari hugleiðingu var það þegar dóttir Millu prests, sýndi aukapar af skóm sem hún hafði meðferðis á leið í sunnudagaskólann. Þetta rifjaði upp sögu sem Jónatan Garðarson sagði samferðarfólki sínu á einni af sínum fróðlegu göngum um söguslóðir hér í Hafnarfirði. Þá var gengið í tilefni af 100 ára afmæli Fríkirkjunnar í Hafnarfirði um þann veg sem fólk þurfti að feta fyrir tíma Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, alla leið að Görðum. Þetta var oft erfitt færi, um hraun og klungur að fara, engir malbikaðir stígar eða vegir. Það var gengið. Þetta var þriggja skópara ferð stundum. Eitt par til að ganga út að Görðum. Annað til að nota í kirkjunni og þriðja parið til að ganga heim. Myndir JGR frá göngunni fylgja hér fyrir neðan ásamt gamalli mynd af Garðakirkju.

Fríkirkjan í Hafnarfirði með raflýsingu frá upphafi.
Upphaf kirkjusóknar í Hafnarfiði er ágætlega rakið í bókinni Loksins klukknahljómur, 100 ára saga Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Þar segir frá því hvernig fólk í bænum tók sig saman undir forystu frumkvöðulsins Jóhannesar Reykdals, stofnaði söfnuð og byggði kirkju. Þetta reyndist síðasta tveggja hæða kirkjan á landinu og sú fyrsta sem var raflýst. Fræg er sagan af því að bæjarbúar þurftu að spara rafmagnið þegar messað var í kirkjunni til að nægt rafmagn væri til þess að lýsa hana upp í messunni. Það var fyrrnefndur Jóhannes Reykdal sem hafði stofnað fyrstu almenningsrafveituna í Hafnarfirði og hann hafði eflaust frumkvæði að því að leggja fyrir rafmagni í kirkjuna þó að á þeim tíma væri alls ekki víst að það væri til nóg rafmagn til að lýsa hana. Jóhannes seldi bæjarbúum rafmagn þannig að í staðinn fyrir að rukka fyrir hversu mikið var notað, sem var eflaust erfitt á þeim tíma og lítið um búnað til að mæla slíkt, þá seldi hann þeim ljósaperurnar því þá var ekki annað gert við rafmagn á heimilum en að nota það til ljósa. Engin önnur raftæki voru komin inn á heimili fólks á þeim tíma.
Til er skemmtileg flökkusaga um að bæjarbúar hafi tekið ljósaperurnar með sér í messurnar til að skrúfa þær í ljósakrónurnar í kirkjunni en hún hefur ekki fengist staðfest.
Allavega þurfti ekki lengur þrjú pör af skóm til að fara til kirkju í Hafnarfirði í desember 1913 og eftir það og það voru rafljós í kirkjunni.
Já saga kirkjunnar okkar er löng og viðburðarík. En það er lykilatriði fyrir okkur að þið öll sem njótið þjónustu starfsliðs Fríkirkjunnar í Hafnarfirði séuð skráð í söfnuðinn. Endilega kannið það á Ísland.is. Sjá hér: https://island.is/tru-eda-lifsskodunarfelog








