Síðstliðinn þriðjudag, 24. nóvember 2026, hélt Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði sinn árlega jólafund í kirkjunni. Um 70 konur sóttu fundinn og um 300 happdrættismiðar seldust sem er frábær árangur. Jólafundurinn er stór viðburður í starfi félagsins og afar mikilvægur í fjáröflun Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði en það er gríðarlega öflugt sem stærsti einstaki fjárhagslegur bakhjarl safnaðarstarfsins.

Björk Pétursdóttir, formaður, bauð gesti velkomna og þakkaði fyrir samstöðuna sem ríkt hefur í hópnum. Síðan tók við þétt dagskrá. Ólöf Baldursdóttir las upp úr bók sem heitir Sumarstormur eftir Steinunni Silju Elvarsd, Anna Marta sagði frá Circolo fyrirtæki sem hún og tvíburasystir hennar reka, Þórunn Rakel Gylfadóttir las uppúr bók sem heitir Síðasti dagurinn, Milla og Inga töluðu um töfra jólanna og barnstrúnna og Guðrún Árný söng eins og henni er einni lagið og endaði kvöldstundina á samsöng. Allar kvenfélagsvinkonur fengu glaðning að fundi loknum og héldu glaðar heim eftir vel heppnað kvöld.
Björk formaður ávarpaði gestina með þessum orðum:
„Kæru kvenfélagskonur og aðrir góðir gestir. Verið hjartanlega velkomin á jólafund Kvenfélags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Það er alltaf jafn ánægjulegt að koma saman á þessum árstíma, njóta samverunnar og finna þann hlýhug sem einkennir okkar góða félagsskap.
Þegar við lítum yfir árið er þakklætið mér efst í huga. Við höfum staðið saman í stóru og mikilvægu verkefni, uppbyggingu safnaðarheimilisins okkar, sem hefur svo mikla þýðingu fyrir okkur öll og framtíð safnaðarstarfsins. Það hefur verið einstaklega dýrmætt að finna þá samstöðu og velvild sem ríkir í kringum þetta verkefni. Hvar sem við komum finnum við fyrir hlýhug og stuðningi, og það minnir okkur á hversu miklu við getum áorkað þegar við stöndum saman.
Nú þegar jólin nálgast verður okkur enn betur ljóst hversu dýrmætur samhugurinn er. Jólin minna okkur á mikilvægi þess að sýna hvert öðru hlýju, umhyggju og kærleika, gefa af okkur og vera til staðar hvert fyrir annað. Það er einmitt sá andi sem við finnum svo sterkt fyrir í okkar félagsskap. Það er ekki sjálfgefið að tilheyra félagsskap þar sem fólk leggur sitt af mörkum af svo mikilli gleði og góðum hug. Fyrir það er ég innilega þakklát. Kvenfélagið okkar er svo sannarlega gefandi félagsskapur og það er styrkur okkar hversu vel við stöndum saman, bæði í gleði og þegar á reynir.
Að lokum vil ég þakka ykkur öllum fyrir ykkar framlag, hlýju og ómetanlegan stuðning. Ég vona að við eigum hér saman notalega og gleðilega kvöldstund í anda jólanna. Verið enn og aftur hjartanlega velkomin. Kærar þakkir fyrir komuna og njótið kvöldsins með ósk um gleðileg jól.“