Fríkirkjan var byggð á þremur mánuðum árið 1913 og byggir á rótgróinni félagshefð og samtakamætti. Stöndum saman!

Skráning í trúfélag er eitthvað sem fólk er ekki alltaf að velta fyrir sér. Mörg teljum við okkur skráð í það trúfélag sem við sækjum þjónustuna til en komumst svo að því að svo er ekki. Og hvers vegna skiptir skráningin máli? Jú, það er vegna þess að með skráningunni skilar ríkið safnaðargjaldinu ykkar til safnaðarins þar sem þið eruð skráð gegnum skattkerfið. Miðað er við að skráningar þann 1. desember árið á undan. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við öll, sem sækjum þjónustu til Fríkirkjunnar í Hafnarfirði séum skráð núna í söfnuðinn.

Nú, þegar Fríkirkjan í Hafnarfirði, stendur í stórri framkvæmd við endurreisn safnaðarstarfsins, er rétt að vekja sérstaklega athygli á þessu og við hvetjum ykkur til að skoða skráninguna ykkar nú þegar. Sjá hlekk hér fyrir neðan. Auk þess hefur starfið vaxið mjög mikið og auðvitað fylgir því kostnaður við starfslið og fleira. Við greiðum nefnilega laun prestanna og annarra starfsmanna af safnaðargjöldunum sem ríkið skilar til okkar ef þið eruð skráð í söfnuðinn. Öfugt við Þjóðkirkjusöfnuðina sem fá sín safnaðargjöld af skráðum safnaðarmeðlimum eins og við en laun prestanna eru greidd af ríkinu. Og eins og flestum má vera kunnugt þá er launakostnaður oft stærsti einstaki kostnaðarliðurinn í öllum rekstri.

Sem sagt: Við hvetjum öll sem sækja þjónustu til Fríkirkjunnar í Hafnarfirði til þess að vera skráð í Fríkirkjusöfnuðinn í Hafnarfiði. Það er einfalt að gera á Ísland.is og mikilvægt að frá því sé gengið sem allra fyrst, helst fyrir mánaðamótin sem nú eru alveg að koma.

Hér er slóðin til að ganga frá þessu: https://island.is/tru-eda-lifsskodunarfelog 

Með vinarkveðju og einlægri þökk,
starfsfólk og stjórn Fríkirkjunnar í Hafnarfirði