• Samstaða safnaðarfólks í endurbótum á safnaðarheimili kirkjunnar.

    22. október 2025

    Fríkirkjan í Hafnarfirði – samstaða safnaðarfólks í endurbótum á safnaðarheimili kirkjunnar. Í haust fara fram miklar endurbætur á safnaðarheimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Skipt verður um þak og sperrur, húsið klætt að utan með bárujárni og efsta hæðin innréttuð að nýju. Þetta er fyrsti áfangi endurbóta. Fríkirkjan og safnaðarheimilið gegna viðamiklu hlutverki í starfi Fríkirkjusafnaðarins sem nú telur um 8000 manns. Dagleg sálgæsla þriggja presta er öllum opin auk þess sem prestar kirkjunnar starfa með áfallaráðum skóla og íþróttafélaga. Náið samstarf er við hjúkrunarheimilin í bænum um þjónustu við íbúa. Til að standa straum af 120 milljón króna kostnaði við þennan ...

Forsíða2026-02-13T11:28:56+00:00

Skráning í Fríkirkjuna

Það er auðvelt að skrá sig í Fríkirkjuna í Hafnarfirði. Skráning fer fram í gegnum vefsíðu Þjóðskrár.

Vetrarstarf kirkjunnar!

Fjölbreytt vetrarstarf litlu fjölskyldu-kirkjunnar í hjarta Hafnarfjarðar! Skráningar í tónlistarstarfið fara fram hér á heimasíðunni eða facebooksíðum hópanna. Allir viðburðir eru auglýstir sérstaklega inn á facebooksíðu kirkjunnar https://www.facebook.com/frikhafn Sunnudagar: Sunnudagaskóli flesta sunnudaga kl. 11:00 - fylgist með heimasíðunni þegar starfið er hafið. Sunnudagaskóli fellur niður vegna vetrarfrís 27. október Kærleikur, friðarboðskapur, söngur og gleði með ...

22. ágúst 2024|

„Svona lítur kirkja út“

Þrítugasta og fjórða vorhátíð Fríkirkjunnar fór fram á sunnudaginn! Vorhátíð Fríkirkjunnar í Hafnarfirði á sér langa sögu. Í tuttugu og sjö ár fór hátíðin fram í Kaldárseli en árið 2018 urðu kaflaskil þegar kirkjan þurfti að leita að nýjum hátíðarstað. Hellisgerði varð fyrir valinu en vegna mikilla framkvæmda og fallegrar uppbyggingar á paradís okkar Hafnfirðinga, ...

6. maí 2024|

Aðalfundur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

Aðalfundur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar fimmtudaginn 30. maí kl. 20:00 til 21:30. Venjuleg aðalfundarstörf. Húsnæðismál. Dagskrá skv. lögum safnaðarins. Safnaðarstjórn  

30. apríl 2024|

Fjáröflun vegna safnaðarheimilis!

Taka þátt í söfnun Á síðustu árum hefur safnaðarfólki Fríkirkjunnar fjölgað verulega. Árið 2000 voru 3.337 manns skráðir í söfnuðinn, árið 2016 voru 6.479 skráðir og um síðustu áramót var fjöldi safnaðarfólks 7.645. Samhliða þessu hefur safnaðarstarfið verið að eflast og það eitt að hér fermast á þriðja hundrað ungmenni á þessu ári segir ...

2. mars 2024|

8. febrúar: Sunnudagaskóli kl. 11:00

15. febrúar: Sunnudagaskóli/Öskudagsgleði kl. 11:00
Kvöldvaka kl. 20:00

22. febrúar: Sunnudagaskóli

1. mars: Sunnudagaskóli kl. 11:00 kvöldmessa kl. 20:00

8. mars: Sunnudagaskóli kl. 11:00

15. mars: Sunnudagaskóli kl. 11:00 Lokasamvera með fermingarbörnum 15:30 og 17:00

22. mars: Sunnudagaskóli kl. 11:00

28. mars: Fermingar

29. mars: Fermingar

2. apríl: Skírdagur/Fermingar

3. apríl: Samvera við krossinn á föstudaginn langa kl. 20:00

5. apríl: Hátíðarmessa á páskadagsmorgun kl. 8:00

12. apríl: Sunnudagaskóli kl. 11:00

19. apríl: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og messa kl. 20:00

23. apríl Fermingar

26. apríl: Sunnudagaskóli/

2. maí: Fermingar

3. maí: Vorhátíð

7. júni: Fermingar

Mánudagar

Krílakórar hefjast 19. janúar

16:30 Krílakór yngri
17:00 Krílakór eldri

Æfingar fara fram á Reykjavíkurvegi 68 2. hæð.

Þriðjudagar

Krílasálmar hefjast 20. janúar

10:30 – 11:10 Krílasálmar fara fram í kirkjunni

16:30 – 18:30 Fermingarstarf

Miðvikudagar

Fríkirkjukórinn:

18:30 – 21:00 æfing

Fimmtudagar

Fyrsta þriðjudag í mánuði:

Kvenfélagið kl. 20:00

Annan þriðjudag í mánuði

Prjónagleði – Upplýsingar á facebooksíðunni: Prjónagleði Fríkirkjunnar í Hafnarfirði 2026

Samfélagsmiðlar

Opnunartími

Alla virka daga

Starfsfólk

Allar upplýsingar um netföng og símanúmer eru hér

Fríkirkjan í Hafnarfirði

Linnetsstíg 6
220 Hafnarfirði
Sími: 565 3430

Skráning í Fríkirkjuna í Hafnarfirði

Go to Top