Frjáls framlög til Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
Fríkirkjan leitar nú til safnaðarfólks um frjáls framlög til safnaðarstarfsins. Að þessu sinni er frjálsa framlagið 2300 kr. og birtist sem valgreiðsla í heimabanka. Sérstaða Fríkirkjunnar í Hafnarfirði liggur m.a. í fjárhagslegu sjálfstæði hennar. Sóknargjöldin, sem eru skattur sem allir landsmenn greiða, þurfa að standa undir öllum kostnaði við safnaðarstarfið. Fríkirkjan hefur ekki sérsamninga ...
Samverustund fermingarbarna og foreldra
Sunnudaginn 21. ágúst kl. 17 munum við hefja fermingarfræðslu vetrarins með samverustund fermingarbarna og foreldra í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Þar munum við eiga góða stund saman með dassi af stuði og hæfilegu magni af praktískum upplýsingum fyrir veturinn. Prestarnir okkar Margrét Lilja Vilmundardóttir og Einar Eyjólfsson munu leiða stundina ásamt Erni Arnarsyni tónlistarstjóra. ...
Fermingarhópur 2023
Hjartans þakkir öll fyrir komuna á samverustund fermingarbarna og foreldra ársins 2023. Hér er hlekkur á fermingarhópssíðuna á facebook: https://www.facebook.com/groups/716040869533115/member-requests Við hvetjum alla foreldra og forráðamenn til að "adda" sér inn í hópinn en þarna verða allar upplýsingar er viðkoma starfinu í vetur. Við hlökkum mikið til komandi vetrar með ykkur öllum.
Nýkjörin safnaðarstjórn Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði var haldinn 17. maí sl. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar sem farið var yfir starfsemi safnaðarins frá síðasta aðalfundi og ný safnaðarstjórn var kjörin. Úr stjórn gengu þau Einar Sveinbjörnsson, formaður, Reynir Kristjánsson varaformaður, Unnur Jónsdóttir ritari og Kjartan Jarlsson. Öll hafa þau starfað um langt árabil í stjórn ...
9. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00
16. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og kvöldmessa kl. 20:00
23. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00
30. nóvember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og samverustund á aðventu með fermingar – fjölskyldum kl. 13:00 – 14:00 og 14:30-15:30
7. desember: Sunnudagaskóli kl. 11:00 og aðventukvöld kl. 20:00
14. desember: Jólaball sunnudagaskólans í Hellisgerði kl. 11:00
24. desember: Aftansöngur á aðfangadag kl. 18:00 og jólasöngvar á jólanótt kl. 23:30
25. desember: Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 14:00
31. desember: Aftansöngur á gamlársdag kl. 18:00
Mánudagar
Krílakórar:
16:30 Krílakór yngri
17:00 Krílakór eldri
Æfingar fara fram á Reykjavíkurvegi 68 2. hæð.
Þriðjudagar
Krílasálmar:
10:30 – 11:10 Krílasálmar fara fram í kirkjunni
16:30 – 18:30 Fermingarstarf
Miðvikudagar
Fríkirkjukórinn:
18:30 – 21:00 æfing
Fimmtudagar
Barnakór:
Öll börn eru hjartanlega velkomin kl. 17:00 – 17:45. Æfingar fara fram á Reykjavíkurvegi 68
Fyrsta þriðjudag í mánuði:
Kvenfélagið kl. 20:00
Prjónagleði – Upplýsingar á facebooksíðunni Prjónagleði Fríkirkjunnar í Hafnarfirði 2025-2026
Samfélagsmiðlar
Opnunartími
Alla virka daga
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Linnetsstíg 6
220 Hafnarfirði
Sími: 565 3430

