9. febrúar: Sunnudagskóli kl. 11 og guðsþjónusta kl. 13.
Á sunnudaginn er sunnudagaskóli kl. 11:00 og guðsþjónusta kl. 13:00? Í sunnudagaskólann mæta þau Rebbi og Mýsla og ætla að fræða okkur um boðorðin tíu. Boðorðin tíu eru lífsreglur sem getur verið gott að rifja upp í amstri dagsins. - bara alveg eins og umferðarreglurnar! Erna mætir ásamt Gleðibandinu svo ...
Friðbjörg Proppé 70 ára
Hún Friðbjörg okkar eða Bibba hélt upp á 70 ára afmæli sitt í gær 5. febrúar. Bibba hefur tengst Fríkirkjunni í áratugi og varla til það safnaðarbarn sem duglegri hefur verið að sækja kirkjuna sína. Friðbjörg á sinn sess í hugum okkar allra og Fríkirkjna í Hafnarfirði sendir henni bestu ...
Fermingarfræðslan í febrúar og mars
Þriðjudagur 4. febrúar. Hópur C kl.17 og D kl. 18. Kristín Þórsdóttir kemur í heimsókn. Þriðjudagur 11. febrúar. Hópur A kl. 17 og B kl.18 Þriðjudagur 18. febrúar. Hópur C kl.17 og D kl. 18 Þriðjudagur 25. febrúar. Hópur A kl. 17 og B kl.18 Þriðjudagur 3.mars. Hópur C kl.17 ...
Aðalfundur Kvenfélags Fríkirkjunnar 4. febrúar
Boðað er til aðalfundar í Kvenfélagi Fríkirkjunnar í Hafnarfirði þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20:00. Fundurinn verður í safnaðarheimili kirkjunnar að Linnetstíg. Dagskrá fundarins verður með eftirfarandi hætti: Við byrjum fundinn á heimsókn frá Bryndísi Jónu þar sem hún mun leiða okkur í allan sannleikann um núvitund. Léttur og skemmtilegur fyrirlestur. ...
2.febrúar: Sunnudagskóli kl. 11 og kvöldmessa kl. 20
Sunnudagaskóli kl.11. Söngur, leikur og uppbyggileg fræðsla. Fríkirkjubandið leikur. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Einar Eyjólfsson predikar og er bænin hugleiðingarefni kvöldsins. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn.
26. janúar : Sunnudagaskóli kl. 11
Söngur, gleði og gaman.Við ætlum að tala um góða hirðinn.Hver er það sem gætir okkar og vakir yfir okkur? Gleðibandið verður á staðnum eins og alltaf og nú ætlar hann Gísli Gamm að tromma með þeim.
Sigurvin Lárus Jónsson til starfa í Fríkirkjunni
Annar prestur Fríkirkjunnar, hún Sigríður Krístín Helgadóttir verður frá um tíma vegna veikinda. Í skarðið á meðan hleypur Sigurvin L. Jónsson og bjóðum við hann velkominn til starfa. Sigurvin Lárus Jónsson er Reykvíkingur að upplagi en móðurfjölskylda hans er úr Hafnarfirði. Sigurvin lauk guðfræðiprófi 2006 og hefur þjónað sem æskulýðsprestur ...
Kirkjustarfið fer af stað um helgina
Sunnudaginn 12. janúar verður helgihald í Fríkirkjunni á nýlökkuðu og fínu kirkjugólfinu! Sunnudagaskólinn kl. 11. Guðsþjónusta kl.13. Fermingarstarfið hefst á ný. Fermigarbörn og foreldrar beðin að mæta. Hópar A og B hittast svo þriðjudaginn 14. janúar.
Kirkjan lokuð – starfið framundan
Kirkjan er lokuð um helgina 4. til 5. janúar vegna viðhalds. Sunnudagaskólinn hefst á nýju ári sunnudaginn 12. janúar. Þá hefst líka fermingarstarfið með guðsþjónustu kl.13. Hópar A og B hittast svo þriðjudaginn 14. janúar. Þessi fallega mynd af Frikírkjunni birtist í miðopnu gamlársdagsblaðs Morgunblaðsins. Ljósmynari er Árni Sæberg.
