Fréttir

Fréttir2021-10-10T17:43:25+00:00

Tónleikar Fríkirkjukórsins 7. júní kl. 20

Fríkirkjukórinn er  á leið til Berlínar að syngja. En að sjálfsögðu fáum við að njóta fyrst, Tónleikar miðvikudaginn 7. júní kl. 20:00.  Þau lofa hressilegri og gefandi kvöldstund. Allir velkomnir og miðar seldir við innganginn á hóflegu verði.

6. júní 2017|

Stund fermingarbarna frá 1957 og 1967

Á uppstigningadag komu saman í kirkjunni fermingarbarnaárgangar Fríkirkjunnar.  Annars vegar þau sem eiga 60 ára fermingarafmæli þetta árið og síðan þau sem fermdust fyrir 50 árum. Þetta var skemmtilega stund og samvera yfir súpu í safnaðarheimilinu á eftir.  Margs var að minnast og kærir endurfundir að vonum. Fjölmargar myndir Ernu ...

26. maí 2017|

Framundan í Fríkirkjunni – vortónleikar kórsins 7. júní

Fermingar verða á Hvítasunnudag og síðan er síðasta ferming ársins á sjómannadaginn víku síðar, 10. júní. Fríkirkjukórinn heldur sína vortónleika í kirkjunni 7. jíní kl. 20. Þessa dagana er verið að mála kirkjuna í sínum réttu litum og eðlilega verður dálítið rask á meðan á stendur.  Annars er málningarvinna fagmanna ...

26. maí 2017|

xx

xxx

26. maí 2017|

21. maí – Kynning á fermingarstarfi 2018

Sunnudaginn 21. maí kl. 17 verður kynning á fermingarstarfi veturinn 2017 – 18.  Þá ætlum við að koma saman í fallegu Fríkirkjunni sem heldur svo vel utanum okkur. Eins og alltaf – þá biðjum við ykkur að koma í fylgd með fullorðnum. Þar sem nú er ljóst að útslitaleikur milli ...

17. maí 2017|

Aðalfundur Fríkirkjusafnaðarins 17. maí kl. 20

Boðað er til aðalsafnaðarfundar Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði maí 2017 kl. 20. í safnaðarheimilinu Linnetsstíg.   Dagskrá Fundarsetning.   Fundargerð síðasta fundar.   Skýrsla um starfsemina. Formaður flytur skýrslu stjórnar. Gjaldkeri leggur fyrir endurskoðan ársreikning. Prestarnir fara yfir safnaðarstarfið. Formaður kvenfélagsins Formaður bræðrafélags kirkjunnar.   Umræður um starf Fríkirkjusafnaðarins.   Kosningar ...

10. maí 2017|

Fermingar sunnudaginn 7. maí

Nk. sunnudag verða fermdir tveir hópar í Fríkirkjunni. Sá fyrri kl. 11 og síðari kl. 13. Myndin sem fylgir var tekin á pálmasunnudag, en hún er ævinlega falleg ganga barnanna með prestunum niður kirkjutröppurnar og yfir í safnaðarheimili að lokinni athöfn.    

4. maí 2017|

Einstaklega vel heppnuð vorhátíð Fríkirkjunnar

Það var með blendnum söknuði að fara með vorhátíð Fríkirkjunnar úr Kaldársseli þar sem hún hefur verið frá 1991.  Með litlum fyrirvara var flutningur auglýstur á Thorsplan.  Byrjaði ekki vel þegar stór vatnspollur tók á móti okkur á miðju torginu eftir rigningarnar að undanförnu.  En Slökkviliðið svaraði kalli og vatninu ...

30. apríl 2017|

30. apríl: Vorhátíðin í Kaldárseli færist á Thorsplan.

Kæru vinir sunnudaginn 30. apríl verður vorhátíðin okkar á Thorsplani kl. 11:00. Vegna óviðráðanlegra ástæðna getum við ekki haldið hátíðina okkar í Kaldárseli að þessu sinni en við gerum að sjálfsögðu bara gott úr öllu og verðum með fjölskylduhátíðina og síðasta sunnudagaskólann okkar á Thorsplani. Hátíðin hefst kl. 11:00 þegar ...

26. apríl 2017|

Munið sunnudagaskólann 23. apríl kl. 11

Sunnudagaskólinn er á sínum stað komandi sunnudag 23. apríl kl. 11.  Þær Ragga og Edda halda uppi fræðslu og stemmingu. Munið að það styttist síðan í Kaldársel sunnudaginn þar á eftir 30. apríl !   Áður auglýst messa á vegum kvennakirkjunnar á sunnudag hefur verið flutt til haustsins.  

21. apríl 2017|
Go to Top